Bryndísin.

Vertu jákvæður á lífið, það gerir það svo miklu skemmtilegra :)

19.07.2007 13:41:15 / bryndis

Lol í dós, Lol í poka og Steipt Lol :D

Hææ. Vá ég er sko alls alls allss ekii dugleg við að blogga..

 

Fór í aðgerð á miðvikudaginn fyrir viku, hékk heima með eitt auga framm á laugardag og skellti mér þá í að passa 6 púka með tilheyrandi pizzupartýii, spólum og nammi. Ég og pétur vorum að bilast á tímabili, því flautur, grát og rifrildi eru ekki sem við þráuum. Fórum svo í 40ára afmæli hjá tengdapabba sem var mega fjör, allir í ógó miklu stuði eins og alltaf! Fórum svo yfir á suðureyri og héngum með Anítu Þulu, Jósefi, ómari, og hafliða. Jáá! Ótrúlegt en satt héngum við með VINUM  jónbjörns! Anyways! Þá kom Jósef með þetta ógó skemmtilega orðatiltæki sem ég er búin að vera með á heilanum og er þarleiðandi ógeðslega barnalegt  bull en ógeðslega fyndið aftur á móti! Lol í dós! Lol í Poka! Og Steiptlol! ÉG OG PÉTUR ERUM AÐ FARA Í FRÍ EFTIR AÐEINS 8 DAGAAAA!! :) óGÓÓÓÓ spennt! :)

allavega.. bæ. :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 08:27:21 / bryndis

sumaaarr! :)

Já það er komið sumar.. Eða það er alveg 22. Júní og Júní fer bara alveg að klárast.. Ég byrjaði í vinnunni 31maí og tók þann dag alveg frábærlega! Fór í vinnuna klukkan 9, og var komin heim um half 11 um kvöldið, vegna þess að við byrjuðum í vörutalningu, svo á föstudeginum kláruðum við hana svo alveg..

 Ég hef svo unnið alla virka daga síðan 1.júní nema einn, þá var ég veik, og svo einn laugardag. Ég get nú alveg sagt að ég er helvíti ánægð með mína laugardaga, vinn næst 30júní, svo 14.júlí og svo ekkert fyrr en 25ágúst. Ég er líka svo ánægð með það að ég sé bókamegin. Ræð svosem öllu þar! :) 

Pétur hefur líka unnið ógeðslega mikið, hann fór eimitt 4.júní á Birnustaði, sem eru inn í djúpi, sagðist koma um klukkan 8 um kvöldið og ég fór nirrí bæ til að sækja hann, en þegar kl var orðin 9 gafst ég upp, fór heim lagði mig og fékk þá sms um að hann kæmi kl 11, þannig að ég fór aftur nirrí bæ, beið í svona hálftíma, og ekkert gerðist.. Fór þá aftur heim, horfði á eina mynd, fór svo í bæjinn klukkan 2, ekkert gerðist, þá gafst ég algjörlega upp, fór heim og upp í rúm, og þá kemur hann ekki trítlandi inn klukkan 3 8|:whut: Hélt í alvööru að hann væri horfinn af botni veraldar.. 

 

Síðan fer að líða að vonandi sumarfríi hjá mér og Pétri.  Ætlum til rvk, laugarbakka, hvammstanga, akureyrar og svo eigum við eftir að melta það að fara með Lindu mömmu Péturs til útlanda..!:$

 En já.. klukkan að verða hálf 9, þarf að fara i vinnunna! :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 17:09:14 / bryndis

mikið að gerast =)

Dísús kræst ! Ég er ekki búin að skrifa síðan í mars :O

Margt sem ég hef gert á þeim tíma! Eða svona smáá margt ;)

Ég og Pétur fórum til Reykjavíkur um páskana, hittum Maríu, Kristinn, og svo hitti ég alla í minni fjölskyldu og svo hittum við líka auðvitað alla fjölskylduna hans Péturs, afa, ömmur, frænkur og frændur! :)

Fórum til Reykjavíkur og vorum hjá mömmu hans Péturs allan tíman, hættum við að fara á Aldrei FórÉgSuður. Smá spæld að hafa misst af því, en ég fer bara á næsta ári auðvitaað=)

Prófin hjá okkur skötuhjúum eru búin.. Ég féll í stæ, nátt og sögu, tók svo söguna aftur og rústaði henni! Pétur minn féll aðeins í Íslensku og ég er viðbjóðslega stolt af honum að hafa náð þessu öllu! :) Ég og hann tökum svo síðasta prófið okkar á þessari önn á mánudaginn, hann í íslensku og ég í náttúrufræði !

Pétur fær svo bílpróf eftir nákvæmlega viku í dag, hann á reyndar ekki afmæli fyyrr en á sunnudaginn eftir viku og einn dag, en eins og allir vita fær maður það um kvöldið dagin áður ! haha vá þetta var flókið =) Mikil spenna hjá stráknum þessa dagana, hann þarf samt að fara í bóklega á þrið og svoo verklega eitthverntíman í næstu viku!

Við erum bæði komin með vinnu, ég í pennanum, eins og alltaf, fer bara ekki þaðan sama hvað ég reyni, og Pétur í vestfirskum vertökum! Verðum að vinna í allt sumar og alveg framm í september, en við heimtum að fá eitthvað frí! Ætlum að fara á laugarbakka, reykjavíkur, útleigu og svoo eitthvað ógóó gaman!

Ég fer hins vegar til reykjavíkur með morgunvélinni 7. Júní til augnlæknis til að kíkja á þessu kúlu í auganu hvort það megi skera í hana greyið! Kem svo bara aftur um kvöldið heim og fer hérna til læknis ef það má skera í hana! :/

Mikið sem gerist eftir sumarið, ég að byrja í 4 bekk verð alveg lang lang lang elst í skólanum samkvæmt því að ef maður er í skóla bara til 4bekk =)

Ég fékk líka eitt stykki bíl, Opel Astra bláan! Hef ekki ennþá haft tíma til að skíra hann eitthvað. Ég læt P 

María systir mín ætlar svoo að koma með nýjan fjölskyldumeðlim 26. September, og ég get með engu móti beðið! Langar svoo ægilega mikið að þetta verðiii strákur!

Anna Lára systir mín ætlar líka að koma með nýjan fjölskyldumeðlim 26. Október, og ég get heldur ekki beðið, Júlía mín að fara að vera stóra systir! Ekkert smá skrítið mér finnst hún svo lítil ennþá þessi elska..:) Og ef María kemur ekki með strák þá vona ég að Anna Lára geri það =)

úff.. Pétur er allllveggg að fara hætta í samkaup, bara daguurinn á morgun, og svo hef ég ástina mína útaf fyrir mig á helgum! Hann var eimitt að vinna í gær, ég í morgun, hann að vinna núna og svo líka allann daginn á morgun! Verðuurr svooo ljúft þegar þetta klárast! Svo lengi sem ég verð ekki að vinna alla laugardaga til 6 þegar skipin koma ! En það verður bara að hafa það! Ekkert sem ég get gert í því kæra fólk..  

En já ætla ekki að hafa þetta lengra, ætla að skella mér í sturtu, fara svo og ná í strákinn minn í vinnuna=)  

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 13:29:52 / bryndis

Blogg...

Blogg.. Ég hef ekki bloggað lengi lengi.

Fiskurinn minn dó um daginn, reyndar komið svolítið saman, hann var að verða 9 ára gamall kjellin:) Dó svo á laugardegi þegar ég var að borða, var eimitt að horfa í búrið og hann bara dáinn, mamma keypti svo nýjan fisk, hann er lítill, og appelsínugulur og svartur, hann er bara snar snar öfugur, hann syndir btw á hvolfi, hann syndir sem samt öfugt, mamma fór í dýrabúðina í gær og þar var haldið að hann væri með sýkingu í maga greyið. Þannig að ég lét maldon salt í búrið og vona að hann verði 9 ára líka:)

Ég var ein heima í mars, fórum á ball í hnífsdal með stuðmönnum, ji ji hvað það var skelfilega leiðinlegt þar. Fórum svo bara heim ég og Pétur og sváfum til eitthvað 2. Þá komu mamma og pabbi heim frá Rvk.

Ég hef gist hjá Pétri eiginlega síðan, elsku ástinni minni sem ég elska meira en allt:)

Stefnan er tekin á Rvk á laugardaginn um morguninn, förum og hittum Arnar Inga og kannski Lóu mína og svo bíó eða eitthvað. Svo er það ferming á sunnudaginn:) Og svo er mánudagurinn, þriðjudaginn, miðvikudaginn óráðin. Fimmtudagurinn fer í aðra fermingu, og svo heim.

Svo er Aldrei fór ég suður,á föstudaginn og laugardag. 

Jæja, hef ekkert til að blogga um.

Vildi bara segja í lokin að ég á án efa besta og sætasta kærastan í öllum heiminum:* 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 09:33:18 / bryndis

vinir ?

Oh, af hverju þarf sumt fólk að rífa vini manns frá manni? :S Ekkert sem ég verð ýkt pirruð á þar ssem við vorum bara einu sinni vinir! Jóó hættiði þessu!  Elsku ykkur samt;*

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 14:24:41 / bryndis

Blogg ;)

Vá langt síðan ég bloggaði, hef svosem ekkert að blogga um. Það var ball á síðustu helgi, Árshátiðin, kosti ekki nema 2500 kall inn, ég, pétur, jónbjörn og hjörtur drukkum heima hjá mér, fórum svo til Höllu og fórum svo á ballið, þið sem fóruð ekki, þið misstum bara nákvæmlega ekki af neinu, þetta var skelfilegt ball þangað til í endan þegar ég sleppti mér alveg dansaði eins og vittleysingur við strákana, pétur var nú samt hverfandi allt ballið. ;)

Það er ball 10mars, sólrisuball, prófin að fara byrja, páskafrí að byrja og allt það. Mitt páskafrí er fullhlaðið.. Fer til Reykjavíkur í óttan 31mars, til 6 apríl. Fer þá heim, ætla að drulla mér svona einu sinni á aldrei fór ég suður, ætla svo að fara á söngvakeppni framhaldskólanna 14 apríl, vonum svo sannarlega að eg verði ekki fyrir vonbrigðum þá eins og síðast. Þó svo að það hafi verið ótrúlega gaman, ég þekkti samt bara fólk frá Hvammstanga sem var æði ! Hittumst væntanlega næst er það ekki ;) Bara það var ekki nógu mikill stemmari í þessu öllu.

Ég er flutt, ég er flutt á bókasafnið í skólanum, frá 8 á morganna til 4 á daginn sit ég hér, er með allar töskurnar mínar hér, úlpuna mína og skóna. Þetta er svo kósí hérna :)

María systir mín ætlar örugglega ða fara koma að heimasækja uppháaldssystir sína 9 mars. ;) Já ég er strax farin að hlakka til :) Hef ekki séð hana síðan í Október.. 8|

Líf mitt er ekkert skemmtilegra en þetta, ég geri ekki neitt, ligg heima, horfi á tölvuna, eða læri ;)

 

Ætla samt að koma með eldheitt blogg eftir sólrisuna, þá verður sko mikið gert ;)

 

Tútleesss elskunar ;)  


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 09:44:39 / bryndis

Sammála? =)

Karlar eru eins og :

                                                        Strætó...

þó þú missir af einum, þá kemur bara næsti


Auglýsingar...

þú getur ekki trúað einu orði sem þeir segja

 

 

 

Íslenski fjármálamarkaðurinn...

svo óskaplega lengi að þroskast.

 

 

                                                       Gluggaveður...

gaman að horfa á en ekki mikið meira

 

 

 

Maskari...

hverfur við fyrstu merki um tilfinnalegt uppnám

 

 

 

Poppkorn...

það veitir þér fullnægju en aðeins í skamman tíma.

 

 

                                                               

 

Hraðbankar... 

 um leið og búið er að taka út, hefur þú engin not fyrir hann lengur

 

                                      

 

 

Smokkar...

einnota drasl.

                                            


 


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 00:54:25 / bryndis

Annáll!

Annáll 2006, er búin að hugsa hann alveg frá A-Ö alla vikuna held ég.. Hér kemur það ;)

Ákvarðanir ársins: Það hefur pottþétt verið eitthvað sem tengist vondu fólki ! Og það tókst :)



Sigur ársins: Sigraðist á óttanum mínum við vonda fólkið og hefur ekki liðið svona vel lengi :)



Niðursveifla ársins: Þegar Þórey mín og amma dóu.



Dagur ársins: 5ágúst!



Djamm ársins: Skrallið án efa..



Söknuður ársins: Þórey, Amma og Grétar.



Ferðalag ársins: Akureyri um verslunnarmannahelgina með góðum vinahópi! :)




Sjokk ársins: Þegar Þórey dó, Þegar amma dó, þegar ég og grétar hættum saman, og svo þegar ég og hreini og co hættum að vera vinir. Váá ég hef verið eitt sjokk þetta árið ! :O




Par ársins: María og Kristinn..



Stelpa ársins: Guðbjört Lóa hetja ;**



Strákur ársins: Pétur, Jónbjörn og Jósef fyrir að vera svona æðislegir..



Vonbrigði ársins: Margt, margt..




Slúður ársins: Ég og Jónbjörn á skrallinu og svo auðvitað mest lestnaa slúðrið, ég, Jónbjörn, Pétur  og Jósef í einum potti ;)



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 14:46:18 / bryndis

Lóa :)

Á þessum tengill eru kerti. Allir þeir sem vilja styrkja Lóu í baráttunni við krabbameinið geta kveikt á kerti fyrir hana til að hjálpa henni. Ég veit að þú getur þetta Lóa :)

http://www.gratefulness.org/candles/candles.cfm?l=eng&gi=L%C3%B3a


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 08:34:39 / bryndis

kORT... !

Ég á eitt lítið DEBETKORT!!! Af hverju í fjandanum fer maður í MÍNUS þar? Hefði ég vitað það, þá hefði ég ekki keypt mér endarlaust, og alltaf heimild! :/ Sem væri svooo ekki!

Ohhh, dagurinn byrjaði ekki betur en þetta !!! :^)


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 01:29:49 / bryndis

HUGS, ARGH, GARGHH !

Ég held að ég hafi aldrei hugsað svona mikið á ævinni.

Ráðleggingar vel þegnar. :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 14:49:17 / bryndis

2006..

2006..

Janúar: Ég og Grétar vorum búin að vera saman í rúmt ár. Fagnað var 1 árs afmæli Júlíu, þar sem hún var fyrsta barn ársins 2005.  Ekki var liðið langt á mánuðinn þegar Þórey vinkona mín dó í bílslysi á Hnífsdalsvegi aðeins 17 ára gömul.  Haldið var minningarkvöld til minningar um hana í Grunnskólanum á Ísafirði þar sem 1988 árgangurinn kom saman.

 

Febrúar: Sólrisuvikan byrjaði eins og vant er. Sólrisuleikritið, miðilsdundur og þess háttar. Haldnir voru minningartónleikar í kirkjunni til minningar um Þórey og fór ágóðin af þeim tónleikum til styrktar stelpanna sem hún þjálfaði í körfubolta. Rokksúpan var svo haldin í endaðan febrúar. Seldum honduna okkar.  

 

Mars: Fengum nýjan bíl, Golf :)

 

Apríl: Fór til Reykjavíkur í byrjun apríl, þar sem Grétar var að losna við teinana. Var í Reykjavíkur í 3 vikur, og fór þá til Hvammstanga. Fór á skemmtilegasta ball ever. :) Á blönduósi.

 

Maí: Grétar varð 18 ára,  Eurovison var. Prófin byrjuðu.

 

Júní: Vinna, vinna og vinna.

 

Júlí: Vinna, vinna og vinna.

 

Ágúst: Fór á mína fyrstu útihátíð, á akureyri, lögðum af stað á föstudeginum og komum heim á mánudeginu,  ég og Grétar fórum með Nuk, Baldri, Önnu, Pétri og Guðjóni. Á laugardeginum fórum við á ball með Páli Óskari, ég slasaðist. Fékk flösku í hausin, græna tuborg flösku.  Fór upp á sjúkrahús þar sem þar var saumað. Amma mín á Ísafirði Lára veiktist í endaðan ágúst. Skólinn byrjaði.

 

September: Mánuðurinn byrjaði á því sem engin vildi, amma mín dó. Hún dó á sjúkrahúsinu á ísafirði þann 1. september. Ég busaði 1 bekkinga. busaballið, busamaturinn. 9.september var amma mín jörðuð við rosalega fallega útför í Ísafjarðarkirkju. Fengum nýjan bíl uppúr 10unda, Subaru Imprezzu. . Ég varð 18ára. Þann 15 september hættum ég og grétar saman eftir næstum því 2 ára samband, og 1 árs búsestu heima hjá mér. Ég og Arnar Þór að dúlla okkur saman og ég fór í nýjan vinahóp.

 

Október: Ég og Arnar hættum að tala saman. Ég og Anna Steinunn bestu vinkonur. Ég, Hreini og Ási bestu vinir, og Bragi og Kristján. Kynntist, Jónbirni, Jósef og Pétri elskunum. (sem ég get btw ekki lifað án í dag).

 

Nóvember: Ég, Hreini og Ási hættum að tala saman. Það sem stóð alveg upp úr þessum mánuði var skrallið á flateyri. Leynivinaleikur. Leynivinalokahóf. Ég, Jósef, og Jónbjörn skyldum pétur óvart eftir, só sorry elskan, og þar af leiðandi komst hann ekki lengra en þar sem lokahófið var;) Ég komst hinsvegar og hef aldreiii skemmt mér eins vel ! :O Kjaftasagan um mig og Jónbjörn inn á klósetti var útum allan bæ og endaði bara með því að við byrjuðum saman;)

 

 Desember: Próf og vinna, jól og áramót :*

 

Gleðilegt nýtt ár ;**

Nýtt ár byrjað, legst ágætlega í mig svosem.

Ball í kvöld. Í víkinni, 16 ára..

Pétur kemur á morgun, búin að vera í heila 13 dagaa og loksins kemur hann á morgun.. ;P Get ekkkii beðið ;***



 



 



 



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 01:47:57 / bryndis

Jól..! ?

Blogg ? Mér vantar svoo að blogga. En ég hef sko aldrei rithöndina í það ! En ég ætlaa að finna eitthvað til að blogga um. Á ég að blogga um prófin, jóliin eða barnaperran sem er á MSN!? Byrjum á prófunum, prófin eru búin, loksins, loksins. Þetta ætlaði hreinlega aldrei að klárast þar sem ég féll í 4 fögum af 6. Tók endurtektarpróf og náði. Þannig að ég féll bara í 2 af 6 :) Dugleg stelpa, hafði samt átt að vera duglegari. Vinnan hefur tekið við og ég er stansalaust að vinna framm á aðfangadag. Gaman ekki satt? Jólastússið á fólkinu í bænum bara ekkert að byrja örugglega af sökum þessa ógeðslega veðurs sem hefur verið. Vona að þetta byrjii allt á morgun. Ekkert skemmtilegt að hangsa bara í vinnuni. Jólin eru að koma já, á sunnudaginn. Fór eimitt að spá hvernig jólin yrðu. Einar og Kristjana koma á morgun og verða hjá okkur um jólin, svo anna systir og árni óg júlía, ég, mamma, pabbi, og afi. Engin amma og engin María og Kristinn. :( Ég á eftir að sakna þess að hafa ekki ömmu þegar ég kem með pakkana og raða undir tré á þorláksmessu, sjá hana ekki pakka inn gjöfunum inní svona ömmupappír, og gera smákökurnar sem voru alltaf á borðinu eftir pakkastússið, og kakóið í mánaðarbollunum og geta ekki farið í messu um kvöldið og síðast en ekki síst að fá ekki að knúsa hana og kyssa hana einu sinni enn gleðileg jól og að fá ekki einu sinni enn pakka sem stendur "frá ömmu og afa ísafirði" .Ég kvíði jólunum alveg rosalega núna. Veit samt að hún og Þórey munu halda alveg svaka veislu á aðfangadag og hafa það goot ;* Pétur er búin að vera 2 daga að reyna að komast til Reykjavíkur. Ekki enn farin, en fer því miður á morgun. :cry: Verður alveg í heila 14 daga og ég reyni eins og ég get að þrauka það.. Mun samt sakna þín alveg svakalega !! Flýttu þér heim... Hvað á maður að gefa strákum í jólagjöf. Jónbjörn sem stundar snjóbretti og tölvur, Pétur sem hengur í Wow og Jósef sem horfir á klámmyndir allan daginn? úff erfitt erfitt.. :) Ég finn þetta á endanum..

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 18:55:00 / bryndis

..

Margt að gerast. Prófin búin, vinnan tekur við, Jónbjörn að fara til reykjavíkur í eina nótt og pétur að fara líka og yfirgefa mig í næstum 2 VIKUR :o Á strax eftir að sakna þín kjánabangsi :) Prófin eru búin hjá flestum en ég þarf að taaka endurtekt. Ég féll í 4 fögum, já ég er stupid! Hvernig er hægt að fallaa í 4 fögum. Allt er hægt sáá ég þarna.

Síðan er ball í kvöld, ég, pétur, alli, jónbjörn og jósef höfum ákveðið að skundaa á það með trompi, svona allavega næst síðasta djammið okkar á þessu ári, og síðastaa djammið með pétri á 2006. Ég og Jósef ætlum svoleiðis að djamma okkur í rúst. :)

Vinna, vinna og vinna. Er að vinna á morgun og alla daga framm til 24desember takk fyrir. Nei mér ég er ekki komin í jólasstuð. Langar bara ekkert í jólin..

En ég ætlaa að fara læra, borða, sturtaa mig og svo skundaa á ballið :) Hlakka til að sjá sem flesta ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 02:10:27 / bryndis

Torrrent að geraa sig ?

                                                                           nP; Evil in a closet- In Flames;*
                                                                                     skap; Hress;*

Blogg? Ég hef svosem ekkert til að blogga um. Helgin mín einkenndist af rúnti og lærdóma og kúri.

Föstudaguur: Svaf ótrúlega lengi. Svo kom Jónbjörn til mín, og ég, Jósef, Alli, Ölver og Jónbjörn fórum öll á rúntinn um kvöldið. Síðan fór Ölver og Pétur kom með ;*

Laugardagur: Svaf, lærði eitthvað, var hálf veik.Kúrði svo með Jb um kvöldið :D

Sunnudagur: LÆRA!! er að fara í tvöö próf á mánudaginn. Örugg með Uppeldisfræðinna. Ekki ýkja eriftt próf, svoo er það þýskan :( Hún vefst alltaf fyrir mér.

Bloggaa seinna.. Elskaa þig Jónbjöörn.
Kveðja; Nýjasti meðlimur Torrent og firefox aðdáandi ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
SUMARFRÍ!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1672 dögum